24.03.26 - 12:23
Kári Snorrason
Mjólkurbikarinn: Þrír Bestu deildar slagir

Birkir Sveinsson stígur á svið og dregur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Sveinsson stígur á svið og dregur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dregið var í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla í höfuðstöðvum KSÍ, Melavelli, í dag, þriðjudaginn 24. mars kl. 12.00.
Drátturinn var í beinni textalýsingu og má sjá lýsinguna hér að neðan.
Það verða þrír Bestu deildar slagir í 32-liða úrslitunum. KR mætir Val, Fram mætir Víkingi og Þór mætir FH. Bikarmeistarar Vestra mæta annað hvort Leikni eða Smára.

Tekið skal fram að dregið var í 32-liða úrslit þó að leikirnir í 2. umferð Mjólkurbikarsins hafi ekki farið fram. Ástæðan er sú að lítill tími líður frá 2. umferð og þar til leikir 32-liða úrslita fara fram. Með þessu gefst aðeins meiri tími til að skipuleggja ferðalög milli landshluta fyrir hlutaðeigandi félög.
32-liða úrslitin hefjast 4. apríl.
Sterkustu lið Íslandsmótsins sem leika í Bestu deildinni mæta til leiks í 32-liða úrslitunum á meðan liðin úr Lengjudeildinni, nema ríkjandi bikarmeistarar Vestra, stíga strax á svið í 2. umferð.

Í beinni
12:18Drætti lokið!
12:17ÍR/Afturelding - Ýmir og sigurvegarinn úr viðureign KFS og Þorláks
12:17Höttur/Neisti Djúpavogi - KA
12:16Fram - Víkingur R.
12:16Völsungur/Kormákur Hvöt - Breiðablik
12:15Elliði/Grindavík - Keflavík
12:15Tindastóll/Magni - Njarðvík/Hvíti Riddarinn
12:14Grótta/Úlfarnir - Álftanes/Kári
12:13Léttir - Stokkseyri/Árbær - Ægir/Reynir Sandgerði
12:13Fylkir/KV - KFA/Sindri
12:13Stjarnan - Selfoss/Augnablik
12:12Þór - FH
12:12Fjölnir/Víðir - HK/BF 108
12:11KR - Valur
12:11ÍA - Haukar/KFR
12:10Vestri - Leiknir R./Smári
12:10ÍBV - Þróttur R./Víkingur Ó.
12:08Höddi Magg og Toddi sjá um dráttinn
12:05
11:49Styttist í drátt
11:07Boltinn farinn að rúlla
11:05Góðan og gleðilegan daginn