Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Tómas Orri Róbertsson (FH)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baddi bicep.
Baddi bicep.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Góður í klefa þrátt fyrir miklar skapsveiflur.
Góður í klefa þrátt fyrir miklar skapsveiflur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristian Nökkvi, Gísli Gotti og Haaland.
Kristian Nökkvi, Gísli Gotti og Haaland.
Mynd: EPA
Væri til í Gylfa í Krikann.
Væri til í Gylfa í Krikann.
Mynd: Emma Elísa Jónsdóttir
Anton Logi, sá getur vælt.
Anton Logi, sá getur vælt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jafnvel flippaðri en búist var við.
Jafnvel flippaðri en búist var við.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adolf léttur í klefanum.
Adolf léttur í klefanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir gaf Tómasi traustið á síðasta tímabili.
Heimir gaf Tómasi traustið á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tómas Orri Róbertsson gekk í raðir FH frá Breiðabliki fyrir síðasta tímabil og var hluti af öflugi þríeyki á miðju FH með Birni Daníel og Baldri Kára.

Tómas vann sér inn sæti í U21 landsliðinu, spilaði sex leiki með liðinu og er í hópnum fyrir komandi leiki.

Hann skoraði tvö mörk í 24 leikjum í Bestu deildinni í fyrra sem voru hans fyrstu leikir í efstu deild.

Hann hafði áður á ferlinum leikið á láni með Gróttu og Grindavík á láni frá uppeldisfélaginu Breiðabliki. Í dag sýnir Tómas á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Tómas Orri Róbertsson

Gælunafn: Tommi búið að festast síðan ég kom í FH

Aldur: 21 árs

Hjúskaparstaða: Í maka leit

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: minnir að það hafi verið leikur á undirbúningstímabili byrjun árs 2021 með Breiðablik.

Uppáhalds drykkur: ískaldur sunny soda Nocco er frábær

Uppáhalds matsölustaður: Saffran og Grazie

Uppáhalds tölvuleikur: PGA 2K25 tók svolítið yfir seinasta árið.

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei, væri til í að fá kennslu frá Jóhann Ægi hann er þungur í bréfunum.

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Chicago Pd og Hawaii five-o

Uppáhalds tónlistarmaður: Frikki Dór og Hnetan deila þessu

Uppáhalds hlaðvarp: Beint í bílinn

Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: fotbolti.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Pétur Jóhann og Nablinn

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: hvað viltu í matinn? Mamma að dekra við mann

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Liverpool

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Brassarnir Breno Bidon og Rayan voru ágætir.

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Yngri flokka þjálfarar Breiðabliks fá stórt hrós en Heimir Guðjóns hjálpaði mér mjög mikið.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Anton Logi vinur minn getur vælt meira en ég, hélt að það væri ekki hægt. Það er líka varla hægt að ná boltanum af gæjanum.

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Maður var mikið í kringum íþróttir með pabba og leit upp til hans en svo voru Messi og Iniesta alltaf í uppáhaldi.

Sætasti sigurinn: 5-4 sigur á Kópavogsvelli síðasta sumar var mjög sætur

Mestu vonbrigðin: Að falla með Gróttu og lenda í mörgum meiðslum þegar ég var yngri

Uppáhalds lið í enska: Manchester United

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: held það væri ekkert verra að hafa Gylfa Sig í holunni.

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Róbert Hugi og Aron Daði fá þetta saman, alvöru gæði í þeim félögum.

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Viktor Elmar er rugl myndarlegur

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: bara ef það væri svo auðvelt að svara þessari spurningu, margar mjög myndarlegar.

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Lionel Andrés Messi

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: að fyrsta brot getur ekki verið gult spjald.

Uppáhalds staður á Íslandi: Siglufjörður

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: man því miður ekki eftir neinu sérstöku í leik en Guðjón Pétur þrykkti gps mæli í bakið á mér í spili á æfingu með Grindavík um árið. Það var ansi fyndið og skemmtilegt eftir á.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: nei voða litla, reyni að halda sömu rútínu á leikdegi.

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: já mjög mikið, íslenski körfuboltinn og pílan helst.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Phantom

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: dönsku, hryllilegt tungumál

Vandræðalegasta augnablik: þegar mamma labbaði inn á völlinn í miðjum leik hjá mér í 5. flokki og fleygði mér inn í klefa fyrir að vera með ansi mikil leiðindi. Ekki mitt besta moment og því miður alls ekki í síðasta skiptið sem maður hefur verið með almenn leiðindi inn á fótboltavelli…

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: mínir bestu vinir Kristian Nökkvi og Gísli Gotti væru fyrstir á blað og mjög auðvelt val. Væri gaman að hafa eitt stykki Erling Haaland með okkur til að kenna okkur hvernig á að elda almennilega steik, fíflast aðeins og fara yfir málin.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Adolf Daði kom inn með með látum, fær menn til að hlægja á hverjum degi. Verð að nefna Bödda löpp líka, sá var góður í klefa þrátt fyrir miklar skapsveiflur.

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Baldur Kári eða Baddi Bicep eins og ég vil kalla hann myndi vinna Survivor. Skepnan sem hann er myndi pakka öllum keppnum saman og svo er stundum erfitt að lesa í manninn. Perfect blanda.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: ég er 1/4 Guyana maður

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Jökull Andrésson, toppgæi sem mér datt í hug að væri flippaður en ekki svona flippaður

Hverju laugstu síðast: laug að sjálfum mér að ég ætlaði að vera duglegur að læra.

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: sumar sendingaræfingar geta verið alveg agalegar

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: myndi spyrja yfirmenn Manchester United hversu flókið það sé að græja nýjan díl á Carrick og Bruno Fernandes .

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Hlakka til að sjá sem flesta á vellinum í sumar, Áfram FH
Athugasemdir
banner
banner