Mikill fjöldi írskra stuðningsmanna er væntanlegur til Prag í Tékklandi á næstu dögum þar sem lærisveinar Heimis Hallgrímssonar mæta Tékklandi í undanúrslitaleik í umspili um sæti á HM á fimmtudag.
Leikið verður á Fortuna leikvanginum sem rúmar 19.000 áhorfendur og fengu Írar 1.024 miða, þó svo að eftirspurnin hafi verið mun meiri.
Þrátt fyrir það ætla þúsundir stuðningsmanna að ferðast til borgarinnar og taka þátt í gleðinni.
Krár í Prag búa sig undir mikinn eril vegna leiksins og þá sér í lagi írskir barir. Eigandi einnar ískrar knæpu í borginni segir í samtali við Irish Mirror undirbúning hafa hafist strax eftir að ljóst var hvaða þjóð myndi koma í heimsókn.
Þá hefur verið gríðarleg aukning á pöntunum á hinum vinsæla Guinness bjór sem hefur reynst hægara sagt en gert þar sem dagur heilags Patreks var fyrir viku síðan og birgðirnar af skornum skammti.
Athugasemdir



