Fotbolti.net
24.03.26 - 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lampard til Chelsea í þriðja sinn?

Frank Lampard.

Frank Lampard.

Canon

Mynd: EPA

Liam Rosenior er nú þegar orðinn mjög valtur í sessi sem stjóri Chelsea og menn eru farnir að velta fyrir sér hver gæti tekið við liðinu af honum.

Rosenior tók við Chelsea í byrjun þessa árs en það er hægt að færa sterk rök fyrir því að hann sé ekki alveg tilbúinn í starfið.
Nicky Butt, fyrrum landsliðsmaður Englands, telur að Chelsea ætti að íhuga að fá Frank Lampard sem stjóra í þriðja sinn ef Rosenior verður látinn fara.

„Það væri ekki vitlaust að fá Lampard aftur,“ sagði Butt.

Hann telur að Lampard sé nú betri þjálfari en þegar hann stýrði Chelsea áður.

„Hann hefur gert mjög góða hluti og hefur meiri reynslu núna. Hann er allt annar stjóri í dag."

Lampard er jafnframt einn besti leikmaður í sögu Chelsea. Hann er í dag stjóri Coventry þar sem hann hefur gert mjög góða og eftirtektarverða hluti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.