Fotbolti.net
24.03.26 - 22:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Meistaradeild kvenna: Ensku landsliðskonurnar á skotskónum

Alessia Russo.

Alessia Russo.

Canon

Mynd: EPA

Hertz
Átta-liða úrslit Meistaradeildar kvenna hófust í kvöld og var Lundúnaslagur á dagskrá undir flóðljósunum á Emirates-vellinum.

Arsenal er ríkjandi meistari í þessari keppni og þær eru í góðum málum eftir fyrri leik sinn gegn nágrönnunum í Chelsea.
Ensku landsliðskonurnar Chloe Kelly, Lauren James og Alessia Russo voru allar á skotskónum í leiknum en markið hjá Russo, það síðasta í leiknum, gæti reynst mikilvægt þegar farið verður á Stamford Bridge í næstu viku.

Þá hafði Wolfsburg betur gegn Lyon í hinum leik kvöldsins þar sem hin hollenska Lineth Beerensteyn gerði sigurmarkið snemma leiks.

Bæði þessi einvígi eru klárlega áfram og verður fróðlegt að fylgjast með seinni leikjunum.

Wolfsburg 1 - 0 Lyon
1-0 Lineth Beerensteyn ('14 )

Arsenal 3 - 1 Chelsea
1-0 Stina Blackstenius ('22 )
2-0 Chloe Kelly ('32 )
2-1 Lauren James ('66 )
3-1 Alessia Russo ('76 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.