Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
banner
   þri 24. mars 2026 18:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segir Rosenior óþekkjanlegan - „Allt sem hann segir er bara þvæla"
Liam Rosenior.
Liam Rosenior.
Mynd: EPA
Kevin Kilbane segir sinn gamla liðsfélaga, Liam Rosenior, vera nær óþekkjanlegan frá því hann tók við stjórnartaumunum hjá Chelsea í byrjun árs.

Nokkuð grín hefur verið að gert að Rosenior á veraldarvefnum frá því hann tók við Chelsea þar sem hann hefur látið býsna mörg athyglisverð ummæli falla.

Kilbane segir hann Rosenior hafa breyst mikið frá því hann spilaði með honum í Hull City frá 2010 til 2012.

„Eins og hann er núna, þá er hann mér óþekkjanlegur miðað við leikmanninn og manneskjuna sem ég þekkti," sagði Kilbane.

„Það er eins og hann hafi gleypt handbók sálfræðings eða sjálfsævisögu íþróttaleiðbeinanda. Allt sem hann segir er bara þvæla, algjört bull. Það er eins og hann reyni að skrifa niður eins margar tilvitnanir og mögulegt er til að troða þeim svo inn fyrir leiki eða eftir leiki þegar hann talar við fjölmiðla."

Það er strax búin að myndast mikil pressa á Rosenior þrátt fyrir að hann hafi aðeins verið í starfinu frá því í janúar. Chelsea er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en liðið hefur ekki litið vel út að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner