Fotbolti.net
24.03.26 - 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Telur Neestrup á endastöð - Með hugmynd fyrir FCK

Jacob Neestrup, þjálfari FC Kaupmannahafnar.

Jacob Neestrup, þjálfari FC Kaupmannahafnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pressan eykst á Jacob Neestrup, þjálfara FC Kaupmannahafnar, eftir hræðilegt gengi liðsins undanfarið.

Jonas Hebo, sérfræðingur TV2 Sports, telur að félagið ætti að grípa til aðgerða strax og skipta um þjálfara fyrir lok tímabilsins.
Og hann er með hugmynd fyrir FCK.

„Ætti ekki bara að gefa Bo Henriksen starfið?“ sagði Hebo. Hann telur að Henriksen sé klárlega rétti maðurinn í verkefnið en hann stýrði síðast Mainz í Þýskalandi.

FC Kaupmannahöfn er í mikilli krísu og hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í neðri hluta deildarinnar eftir að deildin skiptist í tvo hluta. FCK, sem er ríkjandi meistari í Danmörku, er nú aðeins sex stigum frá fallsæti og staða Neestrup því orðin veik.

Það er athyglisvert að bæði Neestrup og Henriksen spiluðu á leikmannaferli sínum á Íslandi; Neestrup með FH og Henriksen með ÍBV, Fram og Val.
Bo Henriksen.

Bo Henriksen.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.