Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 11:00
Kári Snorrason
Viktor Bjarki í 41. sæti yfir efnilegustu leikmenn heims
Viktor fagnar marki sínu á Nývangi.
Viktor fagnar marki sínu á Nývangi.
Mynd: EPA
Lamine Yamal trónir á toppi listans.
Lamine Yamal trónir á toppi listans.
Mynd: EPA
Viktor Bjarki Daðason er í 41. sæti yfir efnilegustu leikmenn heims, samkvæmt vefmiðlinum Goal. NXGN listinn er árlegur listi frá Goal þar sem valdir eru fimmtíu efnilegustu leikmenn heims.

Til að vera gjaldgengur á listann þarf leikmaður að vera fæddur 1. janúar 2007 eða síðar. Viktor er fæddur 30. júní 2008.

Uppaldni Framarinn er í góðra manna hópi en á toppi listans er Lamine Yamal, Brasilíumaðurinn Estevao fylgir þar á eftir og Pau Cubarsi, leikmaður Barcelona er í þriðja sæti.

Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson var í 33. sæti listans árið 2022 en þá hreppti Jude Bellingham fyrsta sætið. Florian Wirtz var þar á eftir.

Miðillinn fór fögrum orðum um Viktor og má sjá umsögnina hér að neðan.

Umsögn Goal um Viktor:
Er einhver að reyna í dag ef hann hefur ekki að minnsta kosti skoðað að fá sér framherja með skandinavískan bakgrunn? Framherjar sem hafa mótast í Danmörku, Svíþjóð eða Noregi eru í miklum metum um þessar mundir og gæti íslenski framherjinn Viktor Bjarki Daðason verið næstur í þeirri röð eftir að hafa slegið í gegn með FCK, ekki síst í Meistaradeildinni.

Viktor er 193 sentímetrar á hæð og hafa líkamlegir yfirburðir hans valdið varnarmönnum víða í Evrópu miklum vandræðum. Þessi 17 ára gamli framherji hefur skorað þrjú mörk í fyrstu sex leikjum sínum í Meistaradeildinni, þar á meðal opnunarmark gegn Barcelona. Með því sló hann 67 ára gamalt met og varð yngsti leikmaðurinn til að skora í Evrópukeppni á Nývangi.


Smelltu hér til að sjá listann í heild sinni
Athugasemdir
banner
banner