Fotbolti.net
24.05.20 - 16:36
Ívan Guðjón Baldursson

Hvíta-Rússland: Willum bikarmeistari með BATE

Hvíta-Rússland: Willum bikarmeistari með BATE
Canon

Mynd: BATE

BATE Borisov 1 - 0 Dynamo Brest
1-0 Zakhar Volkov ('93)
BATE Borisov mætti Dynamo Brest í úrslitaleik hvítrússneska bikarsins í dag.

Willum Þór Willumsson sat á bekk BATE í venjulegum leiktíma, en staðan var markalaus eftir nokkuð bragðdaufan leik.

Willum, sem hefur vakið verðskuldaða athygli á sér í Hvíta-Rússlandi, kom inn í framlengingu og lífgaði hressilega upp í sóknarleik BATE með innkomu sinni.

Leikurinn hafði verið jafn í 90 mínútur en nú sýndi BATE mikla yfirburði og var vaðandi í færum. Willum komst nálægt því að skora en hitti boltann ekki nægilega vel.

Það var alveg undir lok leiksins sem Zakhar Volkov náði að gera sigurmark BATE. Boltinn datt til hans eftir mikinn darraðadans innan vítateigs.

Leikurinn var flautaður af og BATE hampaði hvítrússneska bikarnum í fjórða sinn í sögunni og í fyrsta sinn síðan 2015.

Willum er á sínu öðru tímabili hjá félaginu og hefur komið við sögu í öllum leikjum liðsins nema einum á árinu.
Hvíta-Rússland: Willum bikarmeistari með BATE
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.