Fotbolti.net
24.05.22 - 19:25
Brynjar Ingi Erluson

Mjólkurbikarinn: Ægir fyrsta liðið í 16-liða úrslit

Ægir spilar í 16-liða úrslitum bikarsins

Ægir spilar í 16-liða úrslitum bikarsins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mjólkurbikarinn
Höttur/Huginn 1 - 3 Ægir
1-0 Rafael Alexandre Romao Victor ('8 , víti)
1-1 Ágúst Karel Magnússon ('31 )
1-2 Stefan Dabetic ('48 )
1-3 Bjarki Rúnar Jónínuson ('85 )
Lestu um leikinn
Ægir er komið í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir 3-1 sigur á Hetti/Hugin á Fellavellinum í dag.

Rafael Victor kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu á 8. mínútu leiksins.

Ágúst Karel Magnússon jafnaði metin eftir hornspyrnu á 31. mínútu áður en Stefan Dabetic kom gestunum yfir í upphafi síðari hálfleiks og aftur var það eftir horn.

Höttur/Huginn fékk góð færi á að jafna leikinn. Fyrst átti liðið skot eftir klukkutímaleik og svo annað dauðafæri undir lokin en gestirnir lokuðu rammanum.

Bjarki Rúnar Jónínuson skoraði svo gríðarlega mikilvægt mark fyrir Ægi þegar fimm mínútur voru eftir. Lokatölur 3-1 fyrir Ægi sem er komið í 16-liða úrslit.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.