Fotbolti.net
24.06.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Fabio Borini til Roma (Staðfest)

Fabio Borini er hann var á mála hjá Swansea

Fabio Borini er hann var á mála hjá Swansea

Canon

Mynd: Getty Images

AS Roma á Ítalíu hefur fest kaup á ítalska framherjanum Fabio Borini frá Parma, en félagið borgaði 4,9 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Borini, sem er 21 árs gamall var keyptur til Parma á síðasta ári frá Chelsea, en Parma seldi strax AS Roma helmingshlut í Borini og lék hann með Rómverjum allt síðasta tímabil, þar sem hann reyndist atkvæðamikill í sókninni.

Í gær var svo haldið uppboð á leikmanninum en þá lögðu bæði Roma og Parma fram umslag með upphæðinni sem þau voru reiðubúin að greiða fyrir hinn helminginn af leikmanninum og reyndust Rómverjar siguvegarar.

Borini hafði verið orðaður við Liverpool á Englandi eftir að Brendan Rodgers tók við liðinu, en hann þjálfaði Borini hjá Swansea á sínum tíma, er Borini var þar á láni frá Chelsea. Framtíð hans er þó ekki enn klár, enda tók nýr þjálfari við Roma í sumar.

Borini er þá partur af ítalska landsliðinu sem leikur á Evrópumótinu í Póllandi og Úkraínu sem stendur.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.