Fotbolti.net
24.06.26 - 10:43
Elvar Geir Magnússon

Af hverju fékk Bellingham ekki rautt fyrir að hylja munninn?

Jude Bellingham.

Jude Bellingham.

Canon

Mynd: EPA

Jude Bellingham landsliðsmaður Englands hélt fyrir munninn þegar hann ræddi við Jordan Ayew, leikmann Gana, í markalausu jafntefli Englands og Gana í gær.

Bellingham fékk enga refsingu, ólíkt Miguel Almiron leikmanni Paragvæ sem fékk rautt spjald gegn Tyrklandi.
Þegar leikmenn eru að tjá sig mega þeir ekki halda fyrir munninn samkvæmt nýjum reglum. Ef um eðlileg og vinaleg samskipti er að ræða mega menn hinsvegar halda fyrir munninn.

Það er því sett í valdsvið dómarana að meta þetta og vissulega gætu komið upp atvik sem eru á gráu svæði.

Þessar nýju reglur voru settar eftir að Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, huldi munn sinn í leik gegn Real Madrid í Meistaradeildinni. Vinícius Júnior sakaði hann um kynþáttafordóma.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.