HM í dag - Lokaumferðin hefst og allt undir

Brasilíumenn mæta Skotum

Mynd: EPA

Mexíkó er búið að tryggja sér sæti í 32-liða úrslitum en Suður-Kórea gæti fylgt þeim

Mynd: EPA

Brasilíumenn mæta Skotum

Mynd: EPA
Lokaumferðin í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó fer af stað í kvöld.
Af þeim þjóðum sem verða í eldlínunni í kvöld og nótt er aðeins Mexíkó þegar komið áfram. Gestgjafarnir tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitum í annarri umferðinni og því er nóg undir þegar lokaumferð riðlakeppninnar fer af stað.
Tvær þjóðir geta tryggt sér sæti í 32-liða úrslitum úr B-riðli. Gestgjafar Kanada eru í góðri stöðu, rétt eins og Sviss, en bæði lið eru með fjögur stig. Sviss mætir Kanada á meðan Bosnía leikur gegn Katar.
Það er meiri spenna í C-riðli en báðir leikirnir þar hefjast klukkan 22:00. Brasilía og Marokkó eru með fjögur stig á toppnum en Skotar eru með þrjú stig og enn inni í myndinni. Haítí, sem situr á botninum, er úr leik.
Skotar mæta Brasilíu á meðan Marokkó leikur gegn Haítí. Neymar er klár í slaginn og verður í hópnum í fyrsta sinn á mótinu.
Klukkan 01:00 í nótt lýkur A-riðlinum. Suður-Kórea er líklegust til að fylgja Mexíkó áfram en liðið er með þrjú stig fyrir lokaumferðina. Tékkland og Suður-Afríka eru með eitt stig hvort.
Suður-Kórea mætir Suður-Afríku á meðan Tékkland leikur gegn Mexíkó.
Mexíkó er, eins og áður segir, komið áfram með sex stig. Þá fara einnig átta þjóðir með bestan árangur í þriðja sæti áfram í 32-liða úrslitin.
Leikir dagsins:
HM A-riðill
01:00 Suður-Afríka - Suður Kórea
01:00 Tékkland - Mexíkó
HM B-riðill
19:00 Sviss - Kanada
19:00 Bosnía - Katar
HM C-riðill
22:00 Skotland - Brasilía
22:00 Marokkó - Haítí