Fotbolti.net
24.06.26 - 04:04
Brynjar Ingi Erluson

HM: Styttumaðurinn gaf Kongó kraft en Kólumbía fór áfram

Kólumbíumenn fagna marki Daniel Munoz sem kom á lokakaflanum

Kólumbíumenn fagna marki Daniel Munoz sem kom á lokakaflanum

Canon

Mynd: EPA

Kólumbía 1 - 0 Kongó
1-0 Daniel Munoz ('76 )
Kólumbía er komin í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir mikla þolinmæðisvinnu og 1-0 sigur á Kongó í K-riðli á Akron-leikvanginum í Guadalajara í Mexíkó í nótt. Sigurmarkið kom undir lok leiks eftir hetjulega baráttu Kongómanna.

Það kom kannski ekki á óvart að Kólumbía var með öll völd í fyrri hálfleiknum.

Daniel Munoz fékk dauðafæri strax á 5. mínútu og það var hálf ótrúlegt að hann hafi ekki komið boltanum í netið. Lionel Mpasi stóð heldur betur undir nafni og var eins og ljón í markinu.

Mpasi varði skot Munoz til hliðar og bakvörðurinn var fyrir opnu marki í frákastinu, en pressan frá markverðinum dugði til og skot Munoz fór í hliðarnetið.

Munoz kom boltanum í netið tveimur mínútum síðar eftir sturlaða sendingu Johan Mojica frá vinstri, yfir vörnina og beint á höfuð Palace-bakvarðarins. Mpasi varði skalla hans en Munoz fylgdi eftir og skilaði frákastinu í netið. Hann var þó rétt fyrir innan og markið dæmt af.

James Rodriguez átti næstu tilraun þegar hann hamraði boltanum af 25 metra færi neðst í hægra hornið, en úlnliður Mpasi var eins og úr stáli og hann varði enn og aftur meistaralega.

Hann var langt í frá hættur. Fimm mínútum síðar varði hann með löppunum frá Luis Díaz innan teigs.

Kólumbíumenn héldu áfram að láta vaða fyrir utan teig. Mpasi sá við hörkuskoti Mojica og skömmu síðar einnig frá Gustavo Puerta. Það virtist einfaldlega engin leið fram hjá Mpasi sem safnaði vörslum.

Ef einhver markvörður á HM átti skilið að fá nokkrar milljónir fylgjenda eftir einn hálfleik, þá var það Mpasi. Hann var kominn með að minnsta kosti fimm sjónvarpsvörslur fyrir hlé.

Kólumbíumenn slökuðu aðeins á skothríðinni síðasta korterið fyrir hlé og þurftu að sætta sig við markalausa stöðu í hálfleik. Kongómenn voru heldur sáttari með það, enda hentaði jafntefli þeim ágætlega fyrir lokaleikinn gegn Úsbekistan og möguleikarnir á að komast áfram enn góðir.

Kólumbía fékk enn eitt dauðafærið þegar um fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Díaz fékk boltann í teignum en Mpasi var aftur vandanum vaxinn og kominn með sjöundu vörsluna í leiknum.

Það var eins og Kongómenn hefðu fengið styrk utan frá og kannski var það nákvæmlega málið.

Nkuka Mboladinga, sem hefur verið kallaður styttumaðurinn, var mættur í stúkuna eftir að hafa misst af fyrsta leiknum þar sem hann þurfti að vera í einangrun vegna ebólufaraldursins. Mboladinga fór víða á samfélagsmiðlum þegar Kongó tók þátt í Afríkukeppninni. Hann stendur á palli allan leikinn, klæddur eins og Patrice Lumumba, fyrsti forsætisráðherra Kongó eftir að landið öðlaðist sjálfstæði og einn efnilegasti leiðtogi Afríku á sínum tíma.

Lumumba var hins vegar myrtur innan árs í átökum við aðskilnaðarhreyfingu í Katanga-héraði, auðugu námusvæði í suðurhluta landsins, sem naut stuðnings Belga.

Styttumaðurinn er því tákn fyrir reisn, frelsi og þjóðarfullveldi. Hann neitaði að ræða við fjölmiðla á vellinum og tók hlutverk sitt mjög alvarlega.

Inni á vellinum voru Kólumbíumenn hins vegar ekki lengur jafn sannfærandi og farnir að þreytast.

Kongó fékk tvö sjaldgæf færi þegar stundarfjórðungur var eftir. Fyrst fékk Yoane Wissa boltann við teiginn og reyndi fast skot sem Kólumbíumenn komust fyrir. Aðeins nokkrum sekúndum síðar kom fyrirgjöf á fjærstöngina en dauðafrír skalli Kongómanna var settur fyrir markið í stað þess að stýra honum á það. Það reyndist dýrkeypt.

Fáeinum mínútum síðar skoraði Munoz sigurmarkið. Juan Quintero fann leiðina á milli varnarmanna og í áttina að Jhon Cordoba, sem náði að skýla boltanum. Hann lak út á Munoz sem lét vaða, boltinn hafði viðkomu í varnarmanni og söng niðri í hægra horninu. Þessi var erfiður fyrir Mpasi sem var loksins sigraður.

Díaz kom boltanum í netið mínútu síðar eftir að hafa vippað yfir Mpasi, en hann hafði ýtt varnarmanni Kongó frá sér áður og markið var réttilega dæmt af.

Aftur kom Díaz boltanum í markið og aftur var það tekið af honum. Hann fékk boltann á vinstri kantinum, færði hann yfir á hægri, hótaði nokkrum sinnum skoti og þrumaði svo boltanum í hægra hornið. Díaz var þó rétt fyrir innan þegar sendingin kom og rangstaða dæmd. Hann lét vonbrigðin í ljós með því að kýla nokkrum sinnum í grasið enda vildi ekkert falla með honum.

Það fór aðeins um Kólumbíumenn á lokamínútunum. Kongó reyndi og reyndi á meðan hinir voru að tefja með því að kasta sér í grasið í hornspyrnum. Þar náðu þeir gulklæddu að taka aðeins af uppbótartímanum og á endanum dugði eitt mark Kólumbíu til að tryggja sæti í 32-liða úrslitum. Þeir hefðu viljað hafa þetta stærra og þægilegra, en sigurinn og sætið áfram skipta mestu.

Það var mikilvægt að klára þetta fyrir lokaleikinn gegn Portúgal. Kólumbía er á toppi riðilsins með sex stig, en Kongó er í þriðja sæti með eitt stig. Kongómenn eiga enn möguleika á að komast áfram en þurfa þá að vinna Úsbekistan í lokaumferðinni.
Styttumaðurinn var loksins mættur í stúkuna

Styttumaðurinn var loksins mættur í stúkuna

Canon

Mynd: EPA

HM: Styttumaðurinn gaf Kongó kraft en Kólumbía fór áfram
Canon

Mynd: EPA

Daniel Munoz var stórhættulegur í sóknarleik Kólumbíu og náði loksins að koma boltanum í netið undir lokin.

Daniel Munoz var stórhættulegur í sóknarleik Kólumbíu og náði loksins að koma boltanum í netið undir lokin.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.