Fotbolti.net
24.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Sverrir fær nýjan liðsfélaga frá Barcelona (Staðfest)

Sverrir fær nýjan liðsfélaga frá Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Panathinaikos

Markvörðurinn Inaki Pena er genginn í raðir gríska félagsins Panathinaikos frá Spánarmeisturum Barcelona.
Panathinaikos náði á dögunum samkomulagi við Barcelona um kaup á Pena og hefur markvörðurinn nú skrifað undir samning við gríska félagið.

Pena, sem er 27 ára gamall, lék 45 leiki með aðalliði Barcelona. Flestir þeirra komu tímabilið 2024/25 þegar hann leysti Marc-André ter Stegen af hólmi eftir meiðsli, áður en Wojciech Szczesny tók við stöðunni í markinu.

Staða Pena hjá Barcelona var orðin þröng eftir komu Joan Garcaa frá Espanyol og því ákvað hann að leita á vit nýrra ævintýra. Hjá Panathinaikos fær hann tækifæri til að berjast um stærra hlutverk.

Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason er á mála hjá Panathinaikos, sem hefur nýtt tímabil gegn PAKS frá Ungverjalandi í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.