Fotbolti.net
24.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Leeds í viðræðum við Wilson

Leeds í viðræðum við Wilson
Canon

Mynd: EPA

Leeds United er í viðræðum við velska sóknartengiliðinn Harry Wilson en þetta segir Athletic.
Wilson, sem er 29 ára gamall, kom að átján mörkum fyrir Fulham á síðustu leiktíð.

Hann rennur út á samningi eftir viku og það liggur fyrir að hann verður ekki áfram hjá Lundúnafélaginu.

Athletic segir að umboðsmaður Wilson hafi átt jákvæðar viðræður við Leeds og að málin þokist í rétta átt.

Velski landsliðsmaðurinn er uppalinn hjá Liverpool en fékk aldrei almennilegt tækifæri til að skína þar. Hann var á endanum seldur til Fulham árið 2022 eftir að hafa staðið sig vel á láni hjá félaginu.

Wilson á 69 A-landsleiki og hefur skorað 17 mörk fyrir Wales.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.