Fotbolti.net
24.06.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo: Yrði geggjað að mæta Messi

Ronaldo: Yrði geggjað að mæta Messi
Canon

Mynd: EPA

Portúgalinn Cristiano Ronaldo væri til í að mæta Lionel Messi, helsta keppinauti sínum síðustu áratugi, á heimsmeistaramótinu.
HM: Ronaldo stimplaði sig inn í stórsigri
TENGT EFNI

HM: Ronaldo stimplaði sig inn í stórsigri

Cristiano Ronaldo opnaði markareikning sinn á HM með tveimur mörkum í 5-0 sigri Portúgals á Úsbekistan.

Ronaldo og Lionel Messi hafa verið tveir af bestu leikmönnum aldarinnar en þetta er síðasta heimsmeistaramótið sem þeir taka þátt í. Ronaldo væri til í að mæta gamla keppinautnum á mótinu.

„Að mæta Messi á HM? Það er ekkert vit í þessari spurningu, en okei. Það yrði geggjað að mæta honum.“

„Einbeitingin mín er á þessum sigri. Ég náði að skora og við höldum áfram. Ég er ánægður,“
sagði Ronaldo.

Hann ræddi einnig um það sem hann sagði beint í myndavélina eftir leik, þegar hann gaf til kynna að hann væri mættur aftur. Þar var hann væntanlega að svara gagnrýni sem hann hefur mátt þola frá því mótið hófst.

„Ég sagði að ég væri mættur aftur og þannig hefur þetta verið í 23 ár. Ég er mjög ánægður en það mikilvægasta er vinnan og sjálfstraustið í liðinu,“ sagði Ronaldo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.