Fotbolti.net
24.07.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Milito kominn til Zaragoza (Staðfest)

Real Zaragoza hefur fengið argentínska landsliðsvarnarmanninn Gabriel Milito eftir að Real Madrid hætti við að fá hann þar sem þeir óttuðust að alvarleg hnémeiðsli gætu tekið sig upp aftur hjá honum. Milito, 22ja ára, segir að þetta sé bara bull í spænsku meisturunum, hné hans sé í fullkomnu ástandi en fyrir tveimur árum átti hann við meiðsli að stríða. Milito spilar í miðri vörninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.