Fotbolti.net
24.07.03 - 00:00

Bosvelt til Man City (Staðfest)

Manchester City hefur keypt hollenska miðjumanninn Paul Bosvelt sem skrifað hefur undir tveggja ára samning. Hann stóðst læknisskoðun í dag og líst Kevin Keegan ansi vel á þessi kaup og bindur miklar vonir við Bosvelt.
Hann mun ekki fara til Danaveldis og leika gegn fyrrum liði sínu Feyenoord á föstudag. Búist er við að hann hitti nýju samherja sína á mánudaginn og leiki sinn fyrsta leik gegn Lincoln á þriðjudagskvöld.

Keegan segir að nýji völlur Man City sé líka ástæða fyrir því að auðveldara sé að fá leikmenn til félagsins en áður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.