Fotbolti.net
24.07.12 - 08:27
Hafliði Breiðfjörð

Elfar Freyr Helgason í Stabæk (Staðfest)

Elfar Freyr með búning Stabæk.

Elfar Freyr með búning Stabæk.

Canon

Mynd: Vefur Stabæk

Varnarmaðurinn Elfar Freyr Helgason er genginn til liðs við Stabæk í Noregi frá gríska félaginu AEK í Aþenu í Grikklandi.
Þetta var staðfest á vef norska félagsins í dag en Elfar Freyr semur við Stabæk út núverandi tímabil í Noregi sem lýkur í október.

Hann er 23 ára gamall og hóf feril sinn árið 2009 með Breiðabliki og varð bikarmeistari með félaginu það ár og Íslandsmeistari árið eftir.

Hann fór svo til AEK þar sem Arnar Grétarsson fyrrverandi liðsfélagi hans í Breiðabliki var orðinn íþróttastjóri.

,,Ég veit að Veigar Páll Gunnarsson hefur spilað í Stabæk og Bjarni Ólafur Eiríksson spilar hérna núna. Ég hlakka til að spila fyrir félagið,\" sagði Elfar Freyr á vef Stabæk.

Hér að neðan er viðtal við hann af vef Stabæk.

Heimild: Vefur Stabæk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.