Fotbolti.net
24.07.12 - 18:23
Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Jóna tekur við þjálfun FH (Staðfest)

Guðrún Jóna er orðin aðalþjálfari kvennaliðs FH.

Guðrún Jóna er orðin aðalþjálfari kvennaliðs FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir hefur verið ráðin þjálfari kvennaliðs FH en þetta var staðfest á vef félagsins í dag. Hún tekur við starfinu af Helenu Ólafsdóttur sem hætti óvænt með liðið í síðustu viku.
Guðrún Jóna var aðstoðarþjálfari Helenu hjá FH og tók tímabundið við liðinu eftir að hún hætti í síðustu viku.

FH hefur nú gengið frá ráðningu á Guðrúnu Jónu sem mun áfram stýra 2. flokknum líka. Hún hefur áður verið aðalþjálfari hjá Aftureldingu og KR.

Hún hefur fengið sér til aðstoðar Þórarinn B. Þórarinsson sem hefur þjálfað yngri flokka hjá FH undanfarin ár og markmannsþjálfarann Gísla Þór Einarsson.

Hér að neðan má sjá yfirlýsingu FH vegna málsins.
Guðrún Jóna ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH
Í dag mánudaginn 22. júlí var gengið frá ráðningu Guðrúnar Jónu Kristjánsdóttur sem þjálfara meistaraflokks kvenna hjá FH.

Guðrúnu til aðstoðar verður Þórarinn B Þórarinsson reynslumikill og farsæll þjálfari yngri kvennaflokka hjá FH og Gísli Þór Einarsson.

Guðrún mun hafa yfirumsjón með 2.- - og meistaraflokki en síðastliðin tvö ár hefur Guðrún Jóna þjálfað 2. fl félagsins með góðum árangri auk þess sem hún hefur verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.