Fotbolti.net
24.07.12 - 14:49
Magnús Már Einarsson

Valur kallar Þóri Guðjónsson til baka úr láni (Staðfest)

Valur kallar Þóri Guðjónsson til baka úr láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur hefur kallað kantmanninn Þóri Guðjónsson til baka úr láni frá Fjölnismönnum.
Þórir gekk til liðs við Fjölni á láni í maí og hann hefur verið sprækur með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.

Valsmenn hafa í þessum mánuði lánað bæði Hilmar Rafn Emilsson og Brynjar Kristmundsson í fyrstu deildina og þá eru þeir Hafsteinn Briem og Atli Heimisson að glíma við meiðsli.

Því voru þrír af sjö varamönnum liðsins í tapinu gegn Fram í gær á 2. flokks aldri og nú hafa Valsmenn kallað Þóri til baka úr láni.

Þórir er kominn með leikheimild með Val og getur leikið með liðinu gegn Selfyssingum á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.