24.07.12 - 20:33
Brynjar Ingi Erluson
Thorgan Hazard til Chelsea (Staðfest)

Thorgan Hazard

Mynd: Getty Images

Thorgan Hazard

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur fest kaup á belgíska undrabarninu Thorgan Hazard, en hann kemur frá Lens í Frakklandi.
Hazard, sem er 19 ára gamall hefur leikið fyrir yngri landslið Belgíu síðustu ár, en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Lens á síðasta tímabili.
Eins og nafnið gefur til kynna er Thorgan bróðir Eden Hazard, sem var keyptur til Chelsea frá Lille á dögunum, en Thorgan er talinn enn efnilegri en bróðir sinn.
Hann kemur til með að leika með U21 árs liði Chelsea og er í umræðunni að lána hann frá félaginu til þess að öðlast meiri reynslu.

Heimild: Sky