Fotbolti.net
24.07.18 - 19:50
Ívan Guðjón Baldursson

Diego Rico til Bournemouth (Staðfest)

Diego Rico var í lykilhlutverki er Leganes sló Real Madrid út í 8-liða úrslitum spænska bikarsins.

Diego Rico var í lykilhlutverki er Leganes sló Real Madrid út í 8-liða úrslitum spænska bikarsins.

Canon

Mynd: Getty Images

Bournemouth er búið að staðfesta kaupin á spænska vinstri bakverðinum Diego Rico.
Rico er 25 ára og hefur leikið fyrir Real Zaragoza og Leganes á ferlinum. Hann kostar um 10 milljónir punda.

Rico mun berjast við Charlie Daniels um byrjunarliðssæti en Tyrone Mings og Brad Smith geta einnig leyst stöðuna af hólmi.

Bakvörðurinn hefur þó ekki enn fengið heimild fyrir félagaskiptunum, sem ætti að vera formsatriði. Hún ætti að vera veitt á næstu dögum.

Bournemouth endaði í tólfta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, ellefu stigum fyrir ofan fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.