Fotbolti.net
24.07.18 - 17:21
Ívan Guðjón Baldursson

Fabri til Fulham (Staðfest) - Besti markvörður tyrkneska boltans

Fabri varði mark Deportivo La Coruna áður en hann fór til Besiktas.

Fabri varði mark Deportivo La Coruna áður en hann fór til Besiktas.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham er búið að staðfesta komu markvarðarins Fabricio Agosto Ramirez, betur þekktur sem Fabri.
Fabri er 30 ára gamall og kom til Besiktas fyrir tveimur árum eftir að hafa verið varamarkvörður hjá Deportivo La Coruna, Real Valladolid og Real Betis.

Fabri var ekki lengi að vinna sér inn byrjunarliðssæti hjá Besiktas og var valinn besti markvörður tyrknesku deildarinnar bæði ár sín þar.

Fabri er spænskur og lék einn leik fyrir U20 lið Spánar fyrir áratugi síðan. Hann á að fylla í skarð David Button sem var keyptur til Brighton fyrir viku.

Kaupverðið er óuppgefið en talið nema um 5 milljónum punda. Fabri er búinn að skrifa undir þriggja ára samning með inniföldum möguleika á eins árs framlengingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.