24.07.18 - 16:27
Elvar Geir Magnússon
Felix kynntur hjá Vejle (Staðfest)

Felix mættur í treyju Vejle.

Mynd: Vejle

Felix mættur í treyju Vejle.

Mynd: Vejle
ÍBV hefur lánað Felix Örn Friðriksson til danska úrvalsdeildarfélagsins Vejle. Lánssamningurinn er til eins árs en danska félagið er með forkaupsrétt á Eyjamanninum.
Felix er 19 ára gamall og spilar fyrir U21-landslið Íslands. Þá á hann tvo A-landsleiki, vináttuleikina gegn Indónesíu í janúar á þessu ári.

Felix var formlega kynntur á heimasíðu Vejle í dag en þar er haft eftir íþróttastjóra félagsins, Jacob Krüger, að augun hafi verið á bakverðinum unga í nokkurn tíma.
Honum er lýst sem hæfileikaríkum leikmanni en þurfi að aðlagast þeim gæðum sem eru í dönsku úrvalsdeildinni.
„Það er stórt tækifæri fyrir mig að koma í metnaðarfullt danskt félag. Ég hef heyrt mjög mikið um danskan fótbolta og það eru margir leikmenn héðan sem fara í stærri félög. Ég hlakka til að þróast og reyna mig í betri deild en þeirri íslensku,\" segir Felix við heimasíðu Vejle.
Felix á að berjast um vinstri bakvarðarstöðu Vejle við færeyskan landsliðsmann sem heitir Viljormur Davidsen.
Danska úrvalsdeildin er farin af stað en Vejle er með fjögur stig að loknum tveimur umferðum.

Felix hefur leikið með ÍBV í Pepsi-deildinni síðan 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð