24.07.18 - 16:09
Elvar Geir Magnússon
Fylkir selur Orra Hrafn til Heerenveen (Staðfest)

Orri skrifar undir í Hollandi.

Mynd: Fylkir

Orri skrifar undir í Hollandi.

Mynd: Fylkir
Orri Hrafn Kjartansson leikmaður Fylkis hefur verið seldur til Sc Heerenveen í Hollandi, samningur Orra er til þriggja ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fylki.

Orri sem er 16 ára, fæddur 2002, er uppalinn í Fylki en fer nú í unglingalið Heerenveen.
Orri spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik á afmælisdegi sínum 5. febrúar síðastliðinn þegar hann kom inn sem varamaður í Reykjavíkurmótinu. Orri á einnig leiki með yngri landsliðum.
„Við óskum Orra góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með honum og sjá hann aftur í ORANGE í framtíðinni,\" segir í tilkynningu Fylkismanna.