24.07.18 - 20:08
Elvar Geir Magnússon
Guyon Philips í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Philips mætti til landsins í dag.

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Philips mætti til landsins í dag.

Mynd: Víkingur Ólafsvík
Víkingur Ólafsvík hefur samið við hollenska sóknarmanninn Guyon Philips út tímabilið.
Ólsarar eru í harðri baráttu um að komast upp í Pepsi-deildina á nýjan leik en liðið er í öðru sæti Inkasso-deildarinnar sem stendur.
Ólsarar eru í harðri baráttu um að komast upp í Pepsi-deildina á nýjan leik en liðið er í öðru sæti Inkasso-deildarinnar sem stendur.
Guyon Philips er 24 ára og var síðast hjá Oss í hollensku B-deildinni.
Hann gæti spilað sinn fyrsta leik á fimmtudagskvöldið þegar Ólsarar eiga leik gegn toppliði HK á heimavelli sínum.
Hann gæti spilað sinn fyrsta leik á fimmtudagskvöldið þegar Ólsarar eiga leik gegn toppliði HK á heimavelli sínum.
Framherjinn Guyon Philips mun spila með Víkingi Ólafsvík út sumarið. Guyon er 24 ára gamall og hefur skorað 22 mörk í 83 leikjum í næstefstu deild Hollands. Hann hefur leikið með liðum eins og FC Volendam, Go Ahead Eagles og Top Oss. pic.twitter.com/m5SLrtL4bZ
— Ingólfur Sigurðsson (@ingolfursig) July 23, 2018
✔🇮🇸Happy to announce my signing with Víkingur Ólafsvík in Iceland⚽️ #aframvikinguro #iceland #football #transfer @Vikingurol pic.twitter.com/C7zAVE8fEy
— Guyon Philips (@GuyonPhilips) July 24, 2018
