24.07.18 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð
Hildur Antonsdóttir komin aftur í Breiðablik (Staðfest)

Hildur Antonsdóttir er komin aftur í Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hildur Antonsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks á láni frá HK/Víkingi þar sem hún hefur verið á láni síðan í maí.
Hildur sem er miðjumaður hefur verið sjóðheit með HK/Víkingi að undanförnu og skoraði þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum og í allt fimm mörk í Pepsi-deildinni í sumar.
„Þetta var mjög skemmtilegur tími hjá HK/Víkingi og hjálpaði mér mikið en svo er næsta verkefni að fara til Breiðabliks og berjast um titilinn þar,\" sagði Hildur við Fótbolta.net í vikunni.
Hjá Breiðabliki mun Hildur fá að leysa stöðu Andreu Ránar Hauksdóttur sem er á leið í nám í Bandaríkjunum.
„Ég átti alltaf að fara aftur á þessum tíma því Breiðablik er að missa margar út í háskóla,\" sagði hún en Breiðablik mætir HK/Víkingi eftir viku.
„Það verður svolítið tilfinningaþrunginn leikur fyrir mig,\" sagði hún ennfremur.