24.07.18 - 09:48
Elvar Geir Magnússon
Hörður Sveins í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend
Sóknarmaðurinn reynslumikli Hörður Sveinsson hefur fært sig um set á Suðurnesjunum og er genginn í raðir Reynis Sandgerði úr Keflavík.
Reynismenn leika í neðstu deild en eru búnir að vinna alla sína níu leiki í B-riðli 4. deildarinnar.
Þjálfari Reynis er fyrrum liðsfélagi Harðar, Haraldur Freyr Guðmundsson.

Hörður, sem er 35 ára, á fjölmörg tímabil að baki með Keflavík en hann meiddist í fyrra þegar liðið komst upp úr Inkasso-deildinni. Hann náði aðeins fjórum deildarleikjum í fyrra og hefur ekkert komið við sögu á þessu tímabili.
Alls hefur hann skoraði 84 mörk í 261 meistaraflokksleik hér á landi á ferlinum samkvæmt tölfræði KSÍ.
Fyrir um áratug lék hann með Silkeborg í Danmörku og Tromsö í Noregi.
Hörður var ekki í leikmannahópi Keflvíkinga í gær þegar þeir töpuðu 3-0 fyrir Grindavík. Keflvíkingar eru langneðstir í Pepsi-deildinni, með aðeins þrjú stig.