24.07.18 - 16:48
Elvar Geir Magnússon
Malcom til Barcelona (Staðfest)

Malcom er orðinn leikmaður Barcelona.

Mynd: Getty Images

Malcom er orðinn leikmaður Barcelona.

Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Malcom hefur verið kynntur sem nýr leikmaður Spánarmeistara Barcelona. Hann hefur gert fimm ára samning við félagið.
Talið var að þessi 21 árs leikmaður, sem skoraði 12 mörk og átti sjö stoðsendingar fyrir Bordeaux í Frakklandi á liðnu tímabili, væri að fara að ganga í raðir Roma.
Fjölmargir stuðningsmenn Roma voru mættir á flugvöllinn þegar leikmaðurinn átti að lenda í gær. Allt var klárt fyrir læknisskoðun en Roma og Bordeaux höfðu komið sér saman um kaupverðið.

Malcom mætti þó ekki en svo bárust fréttir af því að Barcelona hefði á síðustu stundu skorist í leikinn. Umboðsmaður leikmannsins mætti til Barcelona og þar var gengið frá málum í dag.
Malcom hefur enn ekki leikið fyrir brasilíska landsliðið en hann kom til Bordeaux frá Corinthians 2016. Hann er annar Brasilíumaðurinn sem Barcelona fær til sín í sumar en félagið keypti miðjumanninn Arthur (21) frá Gremio.

👋 🇧🇷 Bem-vindo Malcom! ¡Bienvenido!
— FC Barcelona (@FCBarcelona_es) July 24, 2018
⚽️ #EnjoyMalcom
🔵🔴 #EnjoyBarça pic.twitter.com/pd2nbccgV6