Fotbolti.net
24.07.18 - 22:10
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Piccini valdi Valencia framyfir Inter og Roma (Staðfest)

Piccini valdi Valencia framyfir Inter og Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Valencia var að ganga frá kaupunum á ítalska hægri bakverðinum Cristiano Piccini.
Piccini er 25 ára og uppalinn hjá Fiorentina. Hann lék aðeins einn deildarleik fyrir félagið áður en hann var lánaður til Real Betis sem ákvað að festa kaup á honum.

Piccini gerði góða hluti í spænska boltanum og var fenginn yfir til Sporting CP í Portúgal. Hann ákvað svo að yfirgefa Sporting í kjölfar skandalsins mikla sem náði hámarki þegar stuðningsmenn klæddir lambhúshettum réðust á leikmenn.

Inter og Roma voru einnig í samningsviðræðum við Piccini en hann valdi Valencia þar sem honum var lofaður meiri spilatími. Hann er hugsaður sem arftaki Joao Cancelo sem gekk til liðs við Juventus fyrr í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.