24.07.18 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Richarlison til Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Everton er búið að ganga frá kaupunum á Richarlison. Sóknarmaðurinn ungi er búinn að skrifa undir fimm ára samning.
Richarlison var keyptur til Watford á 11 milljónir punda fyrir ári síðan og byrjaði mjög vel undir stjórn Marco Silva.
Þegar Silva var látinn fara í janúar hætti Richarlison að skína jafn skært og áður. Silva missti þó aldrei álit sitt á ungstirninu og heimtaði að fá hann til Everton eftir að hann tók við þar á bæ.
Kaupverðið er óuppgefið en fjölmiðlar eru helst sammála um að Everton greiði um 40 milljónir punda fyrir Brassann.
Gylfi Þór Sigurðsson er því enn dýrasti leikmaður í sögu Everton.

🎥 | @Richarlison97 meets USM Finch Farm! Look out for our behind-the-scenes video of his first day on YouTube tomorrow.
— Everton (@Everton) July 24, 2018
Subscribe ➡️ https://t.co/HqjGsPArw9 pic.twitter.com/j5P1iFZJ0z