Fotbolti.net
24.07.18 - 18:26
Ívan Guðjón Baldursson

Tim Krul til Norwich (Staðfest)

Tim Krul til Norwich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Norwich hefur staðfest komu Tim Krul til félagsins. Krul er þrítugur hollenskur markvörður, best þekktur fyrir tólf ára dvöl sína hjá Newcastle. Þar var hann leikmaður ársins 2012.
Krul var keyptur til Brighton í fyrra en náði ekki að ryðja sér leið inn í byrjunarliðið. Hann var laus undan samningi í sumar og ákvað að skrifa undir hjá Norwich, þar sem hann verður að öllum líkindum aðalmarkvörður.

Norwich spilar í Championship deildinni. Liðið endaði um miðja deild á síðasta tímabili, með 60 stig úr 46 leikjum.

Krul á 8 leiki að baki fyrir Holland en spilaði 43 leiki fyrir yngri landsliðin. Hann þekkir einnig Championship deildina eftir að hafa farið upp með Newcastle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.