24.07.18 - 17:13
Elvar Geir Magnússon
Tom Ince til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City, sem féll niður í Championship-deildina í fyrra, hefur keypt vængmanninn Tom Ince frá Huddersfield á 10 milljónir punda.
Kaupverðið gæti hækkað upp í 12 milljónir punda en hinn 26 ára Ince gerði fjögurra ára samning og er fimmti leikmaðurinn sem Gary Rowett fær síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá Stoke í maí.

Rowett þekkir Ince vel enda lék hann undir honum hjá Derby. Ince gekk í raðir Huddersfield 2017.
„Ég vann með Tom áður og hann er gríðarlega hæfileikaríkur leikmaður,\" sagði Rowett við heimasíðu Stoke.
„Hann er sterkur og með öfluga tækni. Hann getur spilað í öllum stöðum sóknarlínunni en er sérstaklega góður á hægri vængnum. Hans tölfræði í Championship talar fyrir sig sjálf.\"
Ince var í unglingastarfi Liverpool á sínum tíma en hann hefur meðal annars spilað fyrir Blackpool og Hull.
Hann skoraði 37 mörk í 105 deildarleikjum fyrir Derby milli febrúar 2015 og júlí 2017.