Fotbolti.net
24.07.18 - 17:47
Elvar Geir Magnússon

Úlfarnir fá Moutinho frá Mónakó (Staðfest)

Moutinho er 31 árs.

Moutinho er 31 árs.

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski miðjumaðurinn Joao Moutinho er kominn til Wolves frá Mónakó en kaupverðið er 5 milljónir punda.

Úlfarnir eru komnir upp í ensku úrvalsdeildina og skrifaði Moutinho undir tveggja ára samning.

Þessi fyrrum leikmaður Porto hjálpaði Portúgal að vinna EM 2016 og er hann þriðji leikjahæsti leikmaður landsliðsins á eftir Cristiano Ronaldo og Luis Figo.
Hjá Wolves hittir Moutinho landsliðsfélaga sinn, markvörðinn Rui Patricio sem kom frá Sporting í Lissabon í sumar. Búist er við því að hann muni leika við hlið Ruben Neves á miðjunni.

Moutinho hefur verið hjá Mónakó síðan 2013 en hann skoraði ellefu mörk í 211 leikjum fyrir franska félagið. 2017 hjálpaði hann því að vinna franska meistaratitilinn.

We are delighted to confirm that @JoaoMoutinho has signed for Wolves on a two-year deal. #BemVindoJoão

🇵🇹🐺 pic.twitter.com/2sCJ2ubK7U

— Wolves (@Wolves) July 24, 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.