24.07.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
West Brom fær Barnes lánaðan frá Leicester (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion er búið að tryggja sér þjónustu Harvey Barnes út tímabilið en hann kemur á lánssamning frá Leicester.
Barnes er tvítugur miðjumaður sem hefurt gert mjög góða hluti á láni hjá MK Dons og Barnsley undanfarin tímabil.
Hjá MK Dons fór hann beint inn í byrjunarliðið í janúar 2017. Hann skoraði 6 mörk í 21 leik í C-deildinni og reyndist lykilmaður.
Eftir sumarfríið gerði hann 5 mörk og lagði 4 upp í 14 leikjum með Barnsley í Championship deildinni og var endurkallaður úr láninu til að hjálpa Leicester í úrvalsdeildinni. Hann kom þó aðeins þrisvar við sögu eftir heimkomuna.
Barnes hefur gert 6 mörk í 10 leikjum fyrir yngri landslið Englands.