24.07.26 - 19:56
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Elfar Árni fékk heiðursskiptingu á Mærudögum

Elfar Árni Aðalsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elfar Árni Aðalsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Völsungur 2 - 0 Grindavík
1-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('6)
2-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('74)
1-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('6)
2-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('74)
Lestu um leikinn: Völsungur 2 - 0 Grindavík
Elfar Árni Aðalsteinsson var hetjan þegar Völsungur skóp sinn annan sigur á deildartímabilinu í Lengjudeild karla.
Elfar Árni náði forystunni snemma leiks fyrir Húsvíkinga þegar hann gerði vel að stýra boltanum í netið með góðum skalla eftir flotta fyrirgjöf frá Tómasi Bjarna Baldurssyni.
Völsungar voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og óheppnir að skora ekki nokkur mörk til viðbótar, en staðan var 1-0 þegar lið gengu til búningsklefa.
Grindvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn á að klúðra dauðafæri en heimamenn voru fljótir að ná aftur tökum á leiknum og verðskulduðu að tvöfalda forystuna á 74. mínútu. Í þetta skiptið var Elfar Árni aftur á ferðinni og kláraði hann stórglæsilega eftir undirbúning frá Dagbjarti Búa Davíðssyni.
Grindvíkingar áttu engin svör og hélt Völsungur áfram að sækja. Heimamenn voru líklegri til að bæta þriðja marki leiksins við heldur en gestirnir en hvorugu liði tókst að skora, svo lokatölur urðu 2-0. Elfar Árni fékk heiðursskiptingu í lokin en það var vel mætt á völlinn enda Mærudagar í fullum gangi.
Þetta eru gríðarlega dýrmæt stig fyrir Völsung sem situr enn í fallsæti, með 11 stig eftir 15 umferðir. Tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni. Grindavík er með 14 stig.