24.11.26 - 09:21
Kári Snorrason
Arsenal og PSG á eftir Nusa - Pochettino vill nýjan framherja

Antonio Nusa.

Mynd: EPA

Liverpool, PSG, Real Madrid og Barcelona láta sig dreyma um Haaland.

Mynd: EPA

Í viðræðum við Liverpool.

Mynd: EPA

Snýr Zaha aftur á Selhurst Park?

Mynd: EPA

Antonio Nusa.

Mynd: EPA

Arsenal og PSG hafa áhuga á Antonio Nusa, Liverpool, PSG og Real Madrid og Barcelona láta sig dreyma um Haaland. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Arsenal hefur rætt við fulltrúa norska kantmannsins Antonio Nusa (21). RB Leipzig vill fá 80 milljónir evra fyrir hann. (Teamtalk)
PSG hefur einnig áhuga á Nusa. Kantmenn liðsins, Desire Doue (21) og Khvicha Kvaratskhelia (25), eru báðir frá keppni út tímabilið vegna krossbandaslita. (AS)
Liverpool, PSG, Real Madrid og Barcelona hefðu öll áhuga á norska framherjanum Erling Haaland (26) ef Manchester City væri tilbúið að selja hann næsta sumar. (Fichajes)
Luca Williams-Barnett (18), efnilegur sóknarmaður Tottenham, er nálægt því að skrifa undir nýjan langtímasamning við félagið. Það yrðu vonbrigði fyrir Chelsea og Borussia Dortmund, sem hafa áhuga á honum. (Telegraph)
Manchester United ætlar að leita að nýjum framherja í janúar. Mauricio Pochettino, nýr stjóri liðsins, vill fá framherja sem er ekki jafn meiðslagjarn og Benjamin Sesko (23). (Times)
Xabi Alonso, stjóri Chelsea, nýtur áfram stuðnings stjórnenda félagsins þrátt fyrir slakt gengi liðsins. (Telegraph)
Liverpool hefur hafið viðræður við brasilíska markvörðinn Alisson Becker (34) um framlengingu á samningi hans. Hann vill skrifa undir til ársins 2029. (Nicolo Schira)
Brighton og Liverpool eru meðal félaga sem hafa áhuga á þýska ungstirninu Wael Mohya (17), leikmanni Borussia Mönchengladbach. (Teamtalk)
Thomas Frank, nýráðinn stjóri Crystal Palace, tekur ákvörðun um hvort félagið semji við fyrrum leikmann sinn, Wilfried Zaha (34). Fílabeinsstrendingurinn er án félags og hefur æft með Palace. (Football Insider)
Franski miðjumaðurinn Adrien Rabiot (31) er nálægt því að skrifa undir nýjan samning við AC Milan. Búist er við að hann gildi til ársins 2030. (Calciomercato)