Fotbolti.net
24.11.26 - 11:21
Elvar Geir Magnússon

Flóðhestsins Fíónu minnst á fótboltaleik

Fíóna.

Fíóna.

Canon

Mynd: Cincinnati Zoo

Bandaríska fótboltafélagið FC Cincinnati mun heiðra minningu flóðhestsins Fíónu sem lést nýlega í dýragarði borgarinnar. Risastór mynd verður í stúkunni fyrir leik gegn Nashville SC á laugardaginn.

Fíóna öðlaðist miklar vinsældir en hún fæddist fyrir tímann í dýragarðinum árið 2017. Hún lést á fimmtudaginn eftir að hafa gleypt ullarhúfu sem gestur missti í vatnið til hennar. Ekki þótti ráðlegt að skera Fíónu upp og aðgerðir dýralækna báru ekki árangur. Hún lést tíu dögum eftir að hafa gleypt hattinn.

Hún varð táknmynd Cincinnati-borgar. Búnir voru til íspinnar sem voru kenndir við hana og þá varð hún fyrirmynd að karakter í balletssýningu í borginni.

Nick Hagglund, leikmaður Cincinnati, heiðraði Fíónu eftir að hafa skorað í 3-1 gegn Orlando daginn sem hún lést. Varnarmaðurinn hrópaði „þetta er fyrir Fíónu“ og hermdi eftir eyrunum á henni í myndbandi sem birtist á Instagram-síðu félagsins, og hægt er að sjá hér að neðan.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.