Fotbolti.net
24.11.26 - 15:38
Elvar Geir Magnússon

Njarðvík kveður Mathaus

Njarðvík kveður Mathaus
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Njarðvík kveður miðvörðinn Felix Mathaus á samfélagsmiðlum félagsins.

Mathaus gekk til liðs við Njaðrvík á eins árs samningi fyrir síðastliðna leiktíð og lék alls fimmtán mótsleiki fyrir félagið.

„Knattspyrndudeildin vill koma þökkum til Felix fyrir tíma sinn hjá Njarðvík og óskar honum góðs gengis í næstu verkefnum hans!" segir Njarðvík á Facebook.
Hann er 36 ára gamall, er frá Grænhöfðaeyjum og er einnig með portúgalskt vegabréf. Tvisvar sinnum hefur Mathaus verið kallaður inn í landslið Grænhöfðaeyja en í hvorugt skiptið kom hann inná.

Njarðvík hefur komist í umspil Lengjudeildarinnar tvö síðustu tímabil en í bæði skiptin dottið út í undanúrslitum. Marc McAusland tók nýlega við þjálfun liðsins eftir að Davíð Smári Lamude lét af störfum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.