Fotbolti.net
24.11.26 - 12:49
Kári Snorrason

Rýnir í tölur Bestu deildarinnar - Meiri tekjur, meira áhorf og betri árangur

Ingólfur Hannesson fer ítarlega í bókhaldið á Bestu deildinni í Facebook-færslu sinni.

Ingólfur Hannesson fer ítarlega í bókhaldið á Bestu deildinni í Facebook-færslu sinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heildartekjur af sölu sameiginlegra réttinda í Bestu deildarinnar hafa nær þrefaldast frá því að Besta deildin var kynnt til leiks og keppnisfyrirkomulaginu var breytt.

Þetta kemur fram í ítarlegri færslu frá Ingólfi Hannessyni, sem hefur starfað að verkefnum fyrir Íslenskan toppfótbolta, á Facebook. Hann telur þróun íslensks félagsliðafótbolta jákvæða en segir félögin þó þurfa að fá meira fyrir leikmenn sem þau selja til útlanda.

Ingólfur rýnir í tölurnar í færslu á Facebook síðu sinni og kemur þar margt áhugavert fram.
Ekki vænlegt að fjölga liðum í Bestu deild karla
TENGT EFNI

Ekki vænlegt að fjölga liðum í Bestu deild karla

Heildartekjurnar nær þrefaldast
Ingólfur segir heildartekjur af sölu sameiginlegra réttinda hafa aukist úr um 750–850 milljónum króna á árunum 2017 til 2021 í um 2,3 milljarða á árunum 2022 til 2026. Aukninguna megi helst rekja til veðmála- og gagnaréttinda auk öflugs markaðsstarfs. Fleiri félög njóti nú góðs af tekjunum en áður.

„Að auki voru útgreiðslur einungis til efstu deildar karla, en nú renna heildartekjur til tveggja efstu deilda, karla og kvenna, og síðan koma tekjur til útgreiðslu vegna veðmálaréttar í bikarkeppni og neðri deildum,“ skrifar Ingólfur.

Úr tíu í 22 milljónir
Ingólfur kom sjálfur að útboði fjölmiðla-, veðmála- og gagnaréttinda tveggja efstu deildanna árið 2021.

„Tekjur hvers félags í efstu deild karla árið 2021 af sölu ofangreindra réttinda (fjölmiðla, veðmála- og gagna, auk markaðsréttinda) voru um 10 milljónir per ár. Þær hafa tvöfaldast á tímabilinu og eru nú ríflega 22 milljónir í Bestu deild karla per lið/ár. Að auki er þessa dagana verið að dreifa til félaganna umtalsverðum uppsöfnuðum tekjum, um 70 milljóna potti, sem eru tekjur umfram áætlanir á tímabilinu,“ segir í færslunni.

Fimmföldun í markaðstekjum
Ingólfur bendir jafnframt á að við breytinguna í Bestu deildina frá Pepsi-Max deildinni var farið úr einum kostunaraðila og yfir í fjóra aðalsamstarfsaðila.

„Margvíslegar hliðarráðstafanir og gríðarlega öflugt markaðsstarf ÍTF og félaganna fjórfaldaði þessar tekjur til félaganna, úr rúmum 20 milljónum á ári í ríflega 100 milljónir. Fimmföldun þar,“ kemur jafnframt fram.

Betri árangur í Evrópu og áhorf aukist
Ingólfur bendir á að íslensk félagslið hafi bætt stöðu sína á styrkleikalista UEFA. Ísland hafi farið úr 52. sæti í 31.–33. sæti og stuðullinn hækkað úr 4,875 í 16,500 frá tímabilinu 2021/22 til 2025/26.

Að meðaltali voru skoruð 3,9 mörk í leik í Bestu deild karla og áhorf á sjónvarpsútsendingar hefur aukist um 47 prósent á síðustu árum. Hann segir jafnframt úrslitin ófyrirsjáanlegri en í flestum Evrópudeildum. Heimaliðin hafi unnið 44 prósent leikja síðasta sumar en útisigrar verið 33 prósent.

„Þetta þýðir ófyrirsjáanleika, nokkuð sem skýrir m.a. mikinn áhuga veðmálafyrirtækja á íslenskum fótbolta,“ segir í færslunni.

Má bæta leikmannasölur
Ingólfur segir þó ekki allt hafa þróast fram á við. „Til dæmis eru tekjur félaganna af einstökum leikmannasölum til erlendra félaga langt undir því sem eðliegt getur talist, en flestir leikmenn eru seldir til erlendra liða fyrir nánast smáaura miðað við önnur lönd. Virðisaukning af leikmannasölum 2021-2025 var 228% í Svíþjóð, 113% í Danmörku, en einungis 12% hér á landi, kemur jafnframt fram í skrifum Ingólfs.

Ingólfur var til tals í hlaðvarpi Fótbolta.net í síðustu viku þar sem hann minntist Guðjóns Þórðarsonar sem lést nýverið. Þar ræddi Ingólfur undir lok þáttar jafnframt um stöðu Bestu deildarinnar. Hægt er að hlusta á hlaðvarpsþáttinn neðst í fréttinni sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Áfram 12 liða deild
Mikil umræða hefur skapast um hugsanlega breytingu á keppnisfyrirkomulagi í Bestu deild karla og mögulega fjölgun í 14-liða deild. Um helgina var kynning á vinnu spretthóps um framtíðarskipulag í Bestu deild karla.

Niðurstaða hópsins er að best væri að halda áfram með 12 liða deild með skiptingu í efri og neðri hluta. Skoða ætti þó möguleika á að bæta kerfið, til dæmis með niðurröðun heimaleikja og meiri hvata fyrir lið í neðri hlutanum.

Hópurinn skoðaði hvaða áhrif fjölgun í fjórtán lið myndu hafa en ýmsir hafa kallað eftir fjölgun. Í skýrslunni kemur fram að fjölgun myndi þynna deildina út, draga úr keppnisgildi og tekjum á hvert félag. Greiðslur UEFA og ÍTF á félag myndu lækka um 14,3%.
Ekki vænlegt að fjölga liðum í Bestu deild karla
TENGT EFNI

Ekki vænlegt að fjölga liðum í Bestu deild karla



Færsla Ingólfs í heild sinni:

Er Besta deildin best?
(VARÚÐ: langur fótboltastatus)

Hvernig má það vera að tæplega hálf þjóðin (49,1%) segist fylgjast með Bestu deild karla og fjórir af hverjum tíu (41,3%) með Bestu deild kvenna í fótbolta? Að karladeildirnar, Besta og Lengjudeild, séu í topp fimm deildum varðandi áhorfendaaðsókn í Evrópu miðað við höfðatölu? Hvers vegna er áhorfendahópur í sjónvarpi á Íslandi svipaður hjá Bestu deild karla og Meistaradeild Evrópu, öflugustu félagsliðakeppni heims? Er það vegna þess að hér eru skoruð fleiri mörk per leik í Bestu en t.d. í ensku, þýsku, ítölsku og frönsku toppdeildunum? Meira skemmtanagildi eða einhver önnur orsök, meiri fagmennska, auknar tekjur? Hér á eftir ætla ég að freista þess að leita svara og velta upp nokkrum atriðum sem þarna kunna að spila inn í.

Skömmu eftir búferlaflutning frá Sviss til Íslands kom ég að viðamiklu útboði árið 2021 fjölmiðla-, veðmála- og gagnaréttinda hjá efstu tveimur deildunum í íslenskum fótbolta. Þetta var ansi áhugavert verkefni þar sem félögin innan Íslensks Toppfótbolta (ÍTF) voru í miðjum klíðum að ræða um að breyta nafni efstu deilda og keppnisfyrirkomulagi, setja allt markaðsstarf í nýjan búning o.s.frv.
Nú eru liðin fimm ár og afar gagnleg umræða núna í gangi innan hreyfingarinnar um hvernig til hafi tekist og hvort ástæða sé til að stíga næstu skref varðandi uppbyggingu, keppnisfyrirkomulag o.fl.

Tínum til nokkrar staðreyndir til að varpa ljósi á stöðuna:

• Tekjur hvers félags í efstu deild karla árið 2021 af sölu ofangreindra réttinda (fjölmiðla, veðmála- og gagna, auk markaðsréttinda) voru um 10 milljónir per ár. Þær hafa tvöfaldast á tímabilinu og eru nú ríflega 22 milljónir í Bestu deild karla per lið/ár. Að auki er þessa dagana verið að dreifa til félaganna umtalsverðum uppsöfnuðum tekjum, um 70 milljóna potti, sem eru tekjur umfram áætlanir á tímabilinu.

• Heildartekjur efstu deildar karla vegna sölu sameiginlegra réttinda í fimm ár, 2017 til 2021, voru um 750-850 milljónir, en eftir breytingar, frá og með 2022 til 2026, einnig fimm ár, voru þær orðnar um 2.300 milljónir. Þar munar mestu um veðmála- og gagnarétt og margfaldar tekjur vegna öflugs markaðsstarfs. Að auki voru útgreiðslur einungis til efstu deildar karla, en nú renna heildartekjur til tveggja efstu deilda, karla og kvenna, og síðan koma tekjur til útgreiðslu vegna veðmálaréttar í bikarkeppni og neðri deildum.

• Við nafnabreytinguna var farið úr einum kostunaraðila (Pepsi Max 2021) og yfir í fjóra, aðalsamstarfsaðila, sem tengjast nafni Bestu deildanna með ýmsum hætti. Margvíslegar hliðarráðstafanir og gríðarlega öflugt markaðsstarf ÍTF og félaganna fjórfaldaði þessar tekjur til félaganna, úr rúmum 20 milljónum á ári í ríflega 100 milljónir. Fimmföldun þar.

• Fyrir rúmu ári tókst að framlengja veðmála- og gagnasamning við eitt öflugasta fyrirtæki heims á þessu sviði, Geinius Sports, með talsverðri hækkun og hafa íslensku deildirnar umtalsvert hærri tekjur af þessu en t.d. deildir í Finnlandi, Lettlandi og Norður-Írlandi, svo dæmi séu tekin af handahófi.

• Nýjar áherslur rétthafans á Íslandi, SÝNAR, hafa skilað ótrúlegum árangri. Nú eru allir leikir í Bestu deildunum sýndir beint og stöðugt er verið að skoða nýjar aðferðir til að bæta útsendingargæði. Geysilega öflug þáttagerð fylgir með og margfaldur sýnileiki á félagsmiðlum hefur breytt myndinni. Til dæmis voru 4,7 milljónir áhorfa á markaklippur Bestu deilda á Instagram á síðasta tímabili, 2026.

• Íslenskur fótbolti hefur verið aðgengilegur um allan heim í gegnum streymisþjónustuna OneFootball, en þar hefur vegur íslenska boltans aukist statt og stöðugt og er nú nánast jafnfætis efstu deildum í Noregi og Póllandi í áhorfi.

• Á vellinum sjálfum hafa áhugaverðir hlutir gerst, eins og best sést á árangri íslensku félagsliðanna, karla og kvenna, í félagsliðamótum UEFA. Ísland var í 52. sæti á sk. „UEFA-Acess“-lista, en er nú í 31.–33. sæti. Stuðull Íslands var 4,875 2021/22 en var kominn í 16.500 2025/26. Íslensku félagsliðin hafa þannig stokkið upp úr flokki veikustu Evrópuþjóða í miðju neðri hluta töflunnar, nálægt löndum eins og Írlandi, Moldóvu, Armeníu og Finnlandi.

• Allt er þetta tilkomið vegna þess að mun meiri atvinnumennska er í öllu starfi félaganna, ekki bara í efstu deildum, heldur einnig í neðri deildum. Fótboltinn er einfaldlega orðinn miklu betri, árangursríkari og skemmtilegri. Í yfir 73% leikja karlamegin voru skoruð fleiri en 2,5 mörk, og meðaltalið var 3,9 mörk (m.v. 3 mörk í ensku úrvalsdeildinni). Það er gaman að fara á völlinn og það er gaman að horfa í sjónvarpi (SÝN) þar sem áhorfendaaukningin á síðustu árum hefur verið 47%. Allir leikir sýndir.

• Ófyrirsjáanleiki er meiri í Bestu en flestum deildum Evrópu, t.d. unnust einungis 44% heimaleikja sl. sumar, en meðaltalið er oft í kringum 50%. Útisigrar voru í 33% tilfella, sem er mjög hátt í öllum samanburði. Þetta þýðir ófyrirsjáanleika, nokkuð sem skýrir m.a. mikinn áhuga veðmálafyrirtækja á íslenskum fótbolta.

• Breyting á keppnisfyrirkomulagi þar sem úrslitakeppni var bætt við hefur heppnast afar vel, en þar er einnig hægt að gera enn betur, en þá þarf að taka djarfar ákvarðanir.

Fram til ársins 2022 byggðist markaðsstarf efstu deilda að mestu leyti á samstarfssamningum einstakra félaga og sölu afmarkaðra réttinda. Með tilkomu Bestu deildanna (og Lengjudeildanna) varð til sameiginlegt vörumerki sem skóp grundvöll fyrir markvissari uppbyggingu. Hið frábæra frumkvöðlafyrirtæki Unbroken tók áhættuna og varð t.d. samstarfsaðili á fyrsta ári, 2022, og einungis ári síðar hafði velta fyrirtækisins tvöfaldast með marktækum og mælanlegum mun á vörumerkjavitund, fyrir og eftir þetta fyrsta tímabil. Mig grunar að þetta sé a.m.k. að hluta hægt að útskýra með tengingunni við Bestu og íslenskan fótbolta.

Breytingarnar hafa meðal annars leitt til þess að Lengjudeildarfélögin fá nú talsverðar tekjur sem voru ekki til fyrir aðeins fimm árum. Og úrslitaleikur Lengjudeildar karla er með réttu oft kallaður „100 milljóna króna leikurinn“.

En það hefur ekki allt þróast fram á við. Til dæmis eru tekjur félaganna af einstökum leikmannasölum til erlendra félaga langt undir því sem eðlilegt getur talist, en flestir leikmenn eru seldir til erlendra liða fyrir nánast smáaura miðað við önnur lönd.

Virðisaukning af leikmannasölum 2021-2025 var 228% í Svíþjóð, 113% í Danmörku, en einungis 12% hér á landi. Hér er verk að vinna (meira um það síðar ef tækifæri gefst).

Þegar litið er yfir helstu mælikvarða, hvort sem horft er til tekjuþróunar, markaðsvirðis, áhorfenda, umfjöllunar eða faglegra vinnubragða, blasir við afar jákvæð þróun. Sú reynsla sýnir að með skýrri stefnu, samstilltu átaki félaganna og áframhaldandi nýsköpun er unnt að byggja enn frekar undir framtíð íslensks toppfótbolta.

Reynsla síðustu ára sýnir að þegar sameiginlegir hagsmunir eru hafðir að leiðarljósi getur íslenskur fótbolti náð umtalsverðum árangri. Þeirri vegferð þarf að halda áfram af fullum krafti.
(Tölulegar upplýsingar eru m.a. frá Gallup Íslandi, transfermarkt, eurocoeff, Goalunit, ÍTF o.fl.).
Heildartekjur af sölu sameiginlegra réttinda í Bestu deild karla hafa nær þrefaldast frá því að Besta deildin var kynnt til leiks og keppnisfyrirkomulaginu var breytt.

Heildartekjur af sölu sameiginlegra réttinda í Bestu deild karla hafa nær þrefaldast frá því að Besta deildin var kynnt til leiks og keppnisfyrirkomulaginu var breytt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingólfur fyrir miðju.

Ingólfur fyrir miðju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tæplega hálf þjóðin (49,1%) segist fylgjast með Bestu deild karla.

Tæplega hálf þjóðin (49,1%) segist fylgjast með Bestu deild karla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Rýnir í tölur Bestu deildarinnar - Meiri tekjur, meira áhorf og betri árangur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rýnir í tölur Bestu deildarinnar - Meiri tekjur, meira áhorf og betri árangur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rýnir í tölur Bestu deildarinnar - Meiri tekjur, meira áhorf og betri árangur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rýnir í tölur Bestu deildarinnar - Meiri tekjur, meira áhorf og betri árangur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjóns Þórðarsonar minnst og sagan af kossinum fræga

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.