24.11.26 - 14:29
Elvar Geir Magnússon
Senegal úrskurðað Afríkumeistari (Staðfest)

Til hamingju Senegal!

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Til hamingju Senegal!

Mynd: EPA
Senegal hefur endurheimt Afríkumeistaratitil sinn eftir úrskurð alþjóðlega íþróttadómstólsins CAS.
Senegal sigraði Marokkó 1-0 í óreiðukenndum úrslitaleik Afríkukeppninnar í janúar en áfrýjunarnefnd afríska fótboltasambandsins felldi sigurinn úr gildi tveimur mánuðum síðar og úrskurðaði 3-0 sigur Marokkó.

Senegal sigraði Marokkó í Rabat eftir að hafa valdið fimmtán mínútna töf á leiknum þegar liðið gekk af velli í mótmælaskyni við að Marokkó hefði fengið vítaspyrnu á síðustu mínútu venjulegs leiktíma.
Stjörnuleikmaðurinn Sadio Mané hjálpaði til við að sannfæra senegalska samherja sína um að snúa aftur. Þegar dómarinn, Jean-Jacques Ndala, hóf leikinn að nýju var vítaspyrna Brahim Diaz frá Marokkó varin. Senegal vann með marki Pape Gueye í framlengingu.
Senegal vann því 1-0 sigur í úrslitaleiknum 18. janúar og eftir sigurinn fögnuðu um milljón manns sigrinum úti á götum höfuðborgarinnar Dakar.
Lög fótboltans kveða á um að ákvarðanir dómara séu endanlegar en áfrýjunardómarar afríska sambandsins vitnuðu í reglugerði um að ef lið neitar að spila eða yfirgefur völlinn án leyfis dómarans þá telst það hafa tapað. Í þessu tilfelli heimilaði dómarinn að leik yrði haldið áfram og CAS telur þá niðurstöðu eiga að gilda.