Fotbolti.net
24.11.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Emil Gauta á reynslu hjá Girona

Emil Gauta á reynslu hjá Girona
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamaðurinn Emil Gautason er þessa stundina á Spáni þar sem hann æfir með Girona FC. Hann verður hjá félaginu í tvær vikur og æfir með bæði U17 og U19 liði félagsins. Það er Tígull sem greinir frá.

Emil er fæddur 2010 og lék í þremur leikjum með ÍBV í Bestu deildinni á tímabilinu. Fyrir ári síðan var hann á reynslu hjá sænska félaginu Mjällby.

Emil á að baki sjö leiki og tvö mörk fyrir unglingalandsliðin. Hann hefur vakið athygli erlendra félaga með góðri frammistöðu með yngri landsliðunum.
Girona er í Katalóníu og er í næstefstu deidl á Spáni eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni í vor. Félagið er hluti af City Football Group, sem einnig á enska stórliðið Manchester City.

„Það sem ég vil sjá er að ungir Eyjapeyjar fái tækifæri til að sanna sig. Þar er meðal annars unglingalandsliðsmaðurinn Emil Gautason, sonur Gauta Varða pípulagningar- og gusumeistara, sem á að fá fleiri sénsa," sagði Hjálmar Ragnar Agnarsson, stuðningsmaður ÍBV, þegar hann gerði upp tímabilið hjá ÍBV.

Heimild: Tígull

Emil Gauta á reynslu hjá Girona
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.