Fotbolti.net
24.11.26 - 16:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Segja að Freysi sé með tilboð frá Swansea

Segja að Freysi sé með tilboð frá Swansea
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Freyr Alexandersson gæti orðið næsti þjálfari Swansea í ensku Championship-deildinni, næstefstu deild á Englandi. Freyr er talinn sá langlíklegasti af veðbönkum til að verða næsti stjóri velska liðsins.

Freyr er þjálfari Rosenborg í Noregi og hefur gert frábærlega á tæplega hálfu ári í starfi. Hann tók við liðinu þegar það var í 15. sæti, hefur unnið tólf af sextán leikjum frá því að hann tók við og er með liðið í 4. sæti norsku deildarinnar.

Swansea Indpendent er fréttasíða sem haldin er út af stuðningsmönnum félagsins. Samkvæmt þeirra heimildum hefur Freyr fengið tilboð frá Swansea um að taka við liðinu og viðræður séu í gangi.
Freyr, sem er 44 ára, myndi taka strax við Swansea og því ekki stýra Rosenborg í síðustu þremur leikjum liðsins í Noregi.

Swansea situr í 8. sæti Championship og gamli fyrirliðinn Ashley Williams stýrir liðinu til bráðabirgða eftir að Vitor Matos var fenginn til Strasbourg í Frakklandi.

Swansea á útileik gegn Middlesbrough í kvöld og svo næst heimaleik gegn grönnunum í Cardiff á sunnudag.


Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough16+1332
2Stoke City16+732
3Wolves16+931
4Birmingham16+1329
5West Brom16+829
6Southampton16+1627
7QPR16+727
8Swansea16+427
9Sheffield Utd16+625
10West Ham16+1424
11Norwich16+924
12Portsmouth16+223
13Blackburn16-122
14Wrexham16-121
15Cardiff City16-118
16Millwall16-518
17Bolton16-918
18Bristol City16-1018
19Charlton Athletic16-1117
20Lincoln City16-1215
21Watford16-1415
22Burnley16-911
23Derby County16-1810
24Preston NE16-179
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.