Fotbolti.net
24.12.18 - 12:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Binni Hlö verður áfram í Færeyjum (Staðfest)

Binni Hlö verður áfram í Færeyjum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Brynjar Hlöðversson er búinn að skrifa undir nýjan samning við færeysku meistaranna í HB. Samningurinn gildir út næsta leiktímabil í Færeyjum.
Brynjar kom til HB frá Leikni R. fyrir síðasta tímabil og var hann einn besti leikmaður liðsins er það setti nýtt stigamet í færeysku úrvalsdeildinni.

Brynjar var valinn í úrvalslið ársins en hann var einnig tilnefndur sem leikmaður ársins og miðjumaður ársins.

Í tilkynningu frá HB segir að það sé mikið fagnaðarefni að Brynjar verði áfram, hann hafi unnið hug og hjörtu allra hjá félaginu.

Heimir Guðjónsson fékk Brynjar til HB. Heimir framlengdi samningi sínum við HB og stýrir því Færeyjarmeisturunum áfram á næsta ári.

Smelltu hér til að hlusta á Brynjar ræða um tíma sinn í Færeyjum í útvarpsþættinum Fótbolta.net í nóvember.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.