fös 02. nóvember 2018 22:21
Elvar Geir Magnússon
Heimir og Brynjar verðlaunaðir á lokahófi í Færeyjum
Heimir átti magnað ár í Færeyjum.
Heimir átti magnað ár í Færeyjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HB raðaði inn verðlaunum í lokahófi færeysku deildarinnar sem haldið var í kvöld. Heimir Guðjónsson var valinn þjálfari ársins en leikmenn og þjálfarar í deildinni velja.

Þessi verðlaun Heimis koma ekkert á óvart enda vann HB deildina á nýju stigameti. Heimir fékk á dögunum verðlaun sem þjálfari ársins hjá þjálfarafélagi Færeyja.

Brynjar Hlöðversson var valinn í úrvalslið ársins. Brynjar var tilnefndur sem miðjumaður ársins og leikmaður ársins en í báðum flokkum var það Adrian Justinussen, tvítugur liðsfélagi hans, sem vann.

Adrian varð markakóngur deildarinnar. HB átti einnig markvörð og varnarmann ársins.

Heimir framlengdi samningi sínum við HB og stýrir því Færeyjarmeisturunum áfram á næsta ári.
Slapp
banner
banner