Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 25. janúar 2023 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Orri Sigurjóns að ganga í raðir Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Sigurjónsson sagði frá því í nóvember að hann myndi ekki spila með Þór á komandi tímabili. Orri er uppalinn hjá Þór og hefur leikið með meistaraflokksliði félagsins síðustu ellefu ár.

„Ætla að vera fyrir sunnan næsta sumar en verð þó alltaf hvítur og rauður," skrifaði Orri í færslu á Instagram.

Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag sagði Hrafnkell Freyr Ágústsson frá því að Orri væri að ganga í raðir Fram.

Orri er 28 ára gamall og getur bæði spilað á miðjunni sem og sem miðvörður.

Fram hefur misst tvo miðjumenn frá síðasta tímabili því Almarr Ormarsson er hættur og Indriði Áki Þorláksson er farinn til ÍA.
Athugasemdir
banner
banner
banner