Fotbolti.net
25.02.19 - 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gulli Gull: Átta ára sonur minn hagar sér ekki svona á fótboltavellinum

Gulli Gull: Átta ára sonur minn hagar sér ekki svona á fótboltavellinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks, var ekki hrifinn af framkomu Kepa Arrizabalaga, markvarðar Chelsea, í gær.
Chelsea ætlaði að skipta Kepa út af eftir að hann varð fyrir hnjaski undir lok framlengingarinnar.

Willy Caballero var búinn að gera sig klárann og var á leiðinni inn á, en Spánverjinn Kepa neitaði að fara út af. Eitthvað sem sést ekki oft í fótboltanum.

Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, tók brjálæðiskast á hliðarlínunni og ætlaði að strunsa inn í klefa, en hætti svo við það.

Eftir leikinn sagði Sarri að um misskilning hefði verið að ræða. Kepa tók í sama streng.

Ef Gunnleifur væri stjóri Chelsea þá myndi Kepa ekki fá að spila meira á þessu tímabili.

„Átta ára sonur minn hagar sér ekki svona inn á fótboltavellinum," sagði Gunnleifur í Messunni á Stöð 2 Sport í gær.

„Ég myndi ekki spila honum í mínútu það sem eftir er af tímabilinu. Mér er sama þótt Eden Hazard þyrfti að fara í markið."
Kepa Arrizabalaga.

Kepa Arrizabalaga.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.