Fotbolti.net
25.02.23 - 12:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stefán Ingi gerir nýjan samning við Breiðablik (Staðfest)

Stefán Ingi gerir nýjan samning við Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Stefán Ingi Sigurðarson hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik en hann gildir út sumarið 2024.

Stefán Ingi var á láni hjá HK síðasta sumar þar sem hann fór hamförum og skoraði 16 mörk í 15 leikjum, sex mörk í tveimur leikjum í bikarnum og 10 mörk í 13 leikjum í Lengjudeildinni.

Hann hefur látið til sín taka í Lengjubikarnum með Breiðablik þar sem hann hefur skorað þrjú mörk í þremur leikjum.

Hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2019 og hefur skorað 30 mörk í 45 leikjum á vegum KSÍ.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.